Viltu vinna með okkur?
Situr þú á góðri sögu, kannt að teikna eða hefur áhuga á lestri og lestrarþroska barna?

Gleely.com er nýtt og spennandi verkefni þar sem við nýtum tækni til að búa til einstakar barnabækur þar sem börnin sjálf eru í forgrunni og partur af sögunni. Með þessu vonumst við til þess að auka áhuga þeirra á bókmenntum, örfa mál- og lestrarþroska barna, auk þess að hvetja til aukinna samverstunda yfir lestri.
Hafðu samband við okkur ef eitthvað af þessu á við:
  • Þú hefur skrifað eða hefur áhuga á að búa til barnabækur
  • Þú kannt að teikna og langar taka þátt í gerð barnabóka
  • Þú hefur hugmyndir um hvernig við getum nýtt tæknina okkar til að gera nýjar vörur
  • Þú vilt benda okkur á hvernig við getum betrumbætt þjónustu okkar
Sendu okkur línu á join@sogubok.is og við svörum þér um hæl.